
Skúta til sölu

Lóa, Día og Mía
Samkvæmt fréttum ríkisútvarpsins sáust þrjár lóur á vaðlinum við Hliðsnes á Álftanesi í morgun og tvær lóur sáust í Fossvogsdalnum fyrir hádegi í gær. Microbátaeigendur fagna þessum tíðindum því nú styttist í sjósetningu.
Þennan fallega microbát rakst ég á á Ísafirði um daginn. Hann var á kerru en virtist í reglulegri notkun:

Þetta er veðurspá gerð í dag sem sýnir lægð ganga yfir Færeyjar næstkomandi sunnudag. Ef spáin gengur eftir, þá fer vindhraði yfir 15 m/sek. Vonandi verða ferðalangarnir komnir langleiðina til íslands eða bundnir við bryggju í Færeyjum á meðan lægðin gengur yfir.

Nu er eg aldeilis a Irlandi.
A morgun verdur skutunni Matzildu ytt ur vor og stefnan sett a Faereyjar.
Eg hyggst skrifa all-nakvaema ferdasogu sem birtist vaentanlega her a sidunni eftir ad eg kem heim.
Thangad til, kaer kvedja og stemming:
Aki Asgeirss
Í dag og næstu daga er áhöfnin á frábæru siglinganámskeiði í Hafnarfirði
Barry Dunning siglingaþjálfari frá Bretlandi þjálfar lengra komna siglara. Barry er marg reyndur þjálfari og hefur meðal annars eftirfarandi réttindi:
RYA/VOLVO International Keelboat Racing Coach
RYA Yachtmaster Offshore (Sail & Power)
ISAF National Judge
Nýja var jú nýrri árið 1988, eins og seglin sem á þessari mynd eru hvít og óteygð…………
Á hörkusiglingu út úr hafnarkjaftinum meðan allt lék enn í lyndi.
Lentum í DNF í þessari keppni. Battarnir gáfu sig og seglið var farið að rifna á saumunum. Verður ekki annað sagt en reynt hafi vel á bátinn í þetta skiptið.
Eftir á að hyggja hefðum við átt að vera harðari að rifa stórseglið. Báturinn var á hliðinni nema þegar seglið flaksaði undan vindi.